Um okkur
Álgluggar ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem staðsett er að Flugumýri 34 í Mosfellsbæ.
Fyrirtækið var stofnað árið 2004 og byggir á gömlum grunni þrotabús Plast- og álglugga ehf. og sérhæfir sig í smíðum á sjálfvirkum hurðum. Einnig smíðum á álgluggum, álhurðum, rennihurðum, smábátahurðum sem og sérsmíði af ýmsu tagi, sbr. bogahurðir og glugga og annað sem viðskiptavinir óska eftir.
Notast er við álkerfi sem byggt er upp á gluggaburðarkerfi, útigluggakerfi og innikerfi sem notað er í skrifstofur og fleira. Efnið er einkar endingargott og er nánast viðhaldsfrítt, sem hentar íslensku veðurfari sérlega vel.
Við veitum persónulega og góða þjónustu til þeirra sem kjósa vönduð vinnubrögð og árlega eru unnin fjölmörg verkefni á höfuðborgarsvæðinu og um allt land.
Ekki hika við að hafa samband í síma 5575757 ef þú hefur spurningar.

